Flott fjölskyldueign á fínum stað í Naustahverfi!Vel staðsett, falleg og nýtískuleg 4-5 herbergja íbúð í fjórbýlishúsi, örstutt i skóla, leikskóla og matvöruverslun.
Stórkostlegt útsýni, stórar og góðar svalir til vesturs, langt er í næstu hús til suðurs og vesturs og næði því mikið ásamt fallegu útsýni. Gólfhiti er alls staðar í íbúðinni, parket á alrými og herbergjum (3ja ára), geymsla er í raun fjórða herbergið.
Forstofa: Gráar flísar á gólfi, fataskápur með hurðum úr spónlagðri eik.
Inn af forstofu er geymslan/herbergi með parketi (hvíttuð eik) á gólfi.
Sama parket er á herbergjum, stofu og eldhúsi.
Stofa og eldhús eru samliggjandi og mynda eina heild, innrétting er úr spólagðri eik með sprautuðum hurðum, skápar/eyja er á hjólum og auðvelt að færa til, eik límtré er á bekkjum, innbyggð uppþvottavél fylgir, góð verönd til vesturs út úr eldhúsi.
Baðherbergi: Rúmgott, þar eru svartar flísar á gólfi, innrétting úr spónlagðri eik með dökkri borðplötu, ljósar flísar á veggjum, sturta (tveir glervængir), ljósar flísar á veggjum, hvít hreinlætistæki, handlaug og vegghengt salerni. Inn af baðherbergi er þvottahús, þar eru svartar flísar á gólfi, innrétting úr spónlagðri eik. Hjónaherbergi er mjög rúmgott, stórir skápar úr spónlagðri eik.
Barnaherbergin tvö eru ágætlega rúmgóð, skápar í þeim báðum.
Sameiginleg hjólageymsla er framan við húsið, einnig er stórt geymsluloft í sameign íbúða.
Hleðslustöð fyrir rafbíla fylgir, staðsett á vegg við plan.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]