Furulundur 9B
Mjög snyrtileg og mikið endurnýjuð fjögurra herb. raðhúsaíbúð á einni hæð, 100,6m2.
Forstofa og geymsla: Brúnar flísar á gólfi, góðar hillur í geymslu, hægt að komast upp á háaloft úr geymslu, prýðilegt geymslupláss þar.
Svefnherbergi eru þrjú, nýlegt og gott eikarparket á gólfi í þeim öllum, skápar eru í öllum herbergjum.
Stofa/borðstofa eru mjög rúmgott rými, eikarparket á gólfi, úr stofu er gengið út á steypta verönd með skjólveggjum, þar er mjög góður garðskúr, með rafmagni og kalt vatn, markísa á verönd.
Eldhús: Nýlega endurnýjað frá grunni (3-4 ár) , innrétting úr spónlagðri eik og hvítsprautuðum hurðum og skúffuforstykkjum, gráar borðlötur, gott skápapláss, hvítar flísar á milli efri og neðri skápa.
Baðherbergi: Allt endurnýjað 2019, nýjar flísar á gólfi og veggum, glerveggur fyrir rúmgóðri sturtu, brún innrétting, hvít hreinlætistæki, handlaug og vegghengt salerni.
Endurbætur/kostir:
Mjög góður garðskúr sunnan við húsið
Nýjar ofnalagnir í allrí íbúðinni
Eldhús endurnýjað 2020-21:
Baðherbergi endurnýjað 2019
Parket allt pússað upp 2019 á öllum rýmum þar sem ekki eru flísar
Bílastæði: 2022 var allt endunýjað ásamt frárennslislögnum, hiti í bílastæðum, stæði fyrir þrjá bíla framan við hverja íbúð.
Aukabílastæði vestan við húsið í sameign allra íbúða.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]