Álfhóll 4
Mjög fallegt og bjart sex herbergja einbýlishús á tveimur hæðum, auðvelt að hafa séríbúð til útleigu á neðri hæð.
Húsið er 183,9m² og er aðkoma að því frá Hjarðarhóli.
Eignin skiptist þannig:
Efri hæð samanstendur af forstofu, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu, borðstofu og þvottahúsi, af gangi er gengið út á steyptar svalir.
Neðri hæð skiptist í: alrými/hol, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu.
Forstofa er staðsett þannig að úr henni er gengið annars vegar upp á efri hæð og hins vegar niður á neðri hæð, dökkar flísar á gólfi, fatahengi,
Efri hæð: Í eldhúsi er ljóssprautuð innrétting með dökkri borðplötu, innbyggðri uppþvottavél, pláss er fyrir ísskáp, dökkar flísa á gólfi
Stofa og borðstofa tengjast saman í eitt rými, mjög bjart og skemmtilegt rými, parket er á gólfi, stór gluggi sem hleypir birtu skemmtilega inn.
Tvö svefnherbergi eru á efri hæð, er annað þeirra með stórum og góðum fataskáp, parket á gólfum.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, ljósar flísar eru á veggjum og gólfi, rúmgóðri sturtu, grárri innréttingu, hvít hreinlætistæki, handlaug og salerni, handklæðaofn.
Þvottahús: staðsett í rými sem áður hýsti upphitun hússins en þar er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Af holi neðri hæðar er gengið út á steypta verönd með skjólveggjum og heitum potti.
Neðri hæð:
Þar er tveggja herbergja íbúð sem hefur stundum verið í útleigu.
Forstofa: Dökkar flísar á gólfi.
Stofa: Dökkarflísar eins og á forstofu og holi.
Eldhús er með ljósri innréttingu og flísum á gólfi, geymsla er inn af eldhúsi.
Svefnherbergi er með dökkum flísum á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, hvítum hreinlætistækijum, handlaug og salerni, flísar á gólfi.
Helstu endurbætur síðustu ár:
– Skipt um aðaldyra- og svalahurð árið 2022.
– Settur var varmaskiptir fyrir neysluvatn árið 2021.
– Drenað í kringum hús, nýtt frárennsli frá húsi og út í götu árið 2022.
– Eldhús var endurnýjað í kringum 2007.
– Rafmagn og vatn var endurnýjað að hluta árið 2007.
— Garður er vel gróinn, á lóð eru tveir geymsluskúrar, annar 4m2 og hinn 15m2, byggð úr timbri og notuð sem geymsluskúrar.
– Gert var við múr og húsið málað sumarið 2025
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


















