Brekkuhús 6
Frábær staðsetning í sveitinni
Fasteignasala Akureyrar hefur nú hafið sölu á lóðum (leigulóðir) á Hjalteyri. Lóðirnar eru 870-1.040 m2 stórar og má byggja allt að 300m2 hús á lóðunum. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Hjalteyri
Langar þig að búa á einum fallegasta stað við Eyjafjörð, einungis 15-20 mín. akstur frá Akureyri, auðvelt að stunda vinnu eða skóla í bænum en búa í rólegheitunum í sveitinni. Skv. deiliskipulagi fyrir Hjalteyri er tilgangur m.a.: Fjölgun íbúðarlóða í brekkunni við Brekkuhús, fjölgun lóða fyrir frístundahús norðan byggðarinnar, tjaldsvæði, bílastæði og smáhýsi á túni sunnan byggðarinnar á brekkunni, aukin byggð á eyrinni; íbúðir, verslun og þjónusta, samkomusvæði og leiksvæði á eyrinni og göngustígur umhverfis Hjalteyrartjörn og fuglaskoðunarhús í brekkurótum ofan tjarnar svo nokkuð sé nefnt.
Þéttbýlið á Hjalteyri byggðist upp nokkru fyrir aldamótin 1900. Var þar verslunarstaður og
útgerðarstöð, um tíma var mikil síldarvinnsla á Hjalteyri og þyrptist þangað fjöldi fólks á sumrin,
bæði innlent og erlent. Athafnamaðurinn Thor Jensen stofnaði fyrirtækið Kveldúlf hf. sem keypti
Hjalteyri og jarðir upp til fjalls. Árið 1937 byggði það stærstu síldarverksmiðju í Evrópu á Hjalteyri
sem var starfrækt til 1966. Eftir að síldin hvarf breyttist atvinnulífið í plássinu. Smábátaútgerð jókst
og önnur starfsemi tók við s.s. niðursuða, fiskverkun KEA, hausaþurrkun og tilraunir með lúðueldi. Í
dag er þar smábátaútgerð og ýmis starfsemi sem fram fer í síldarverksmiðjunni. Síldarverksmiðjan er
ráðandi í yfirbragði byggðarinnar á eyrinni vegna stærðar sinnar en þyrping gamalla húsa við
höfnina og undir brekkurótinni setur svip á byggðina og gefur henni ákveðin einkenni. Nýrri byggð er
uppi á brekkunni. Í brekkurótinni og á eyrinni standa elstu húsin í þorpinu en uppi á brekkunni er byggð frá miðbiki síðustu aldar. Utar á eyrinni er gamla síldarverksmiðjan en hún hýsir í dag ýmsa athafnastarfsemi og sýningarsal fyrir listviðburði. Richardshús, reisulegt íbúðarhús, stendur nyrst á brekkubrúninni. Var það byggt fyrir framkvæmdastjóra síldarverksmiðjunnar, Richard Thors. Einnig var annað glæsihús, Ásgarður, byggt fyrir verksmiðjustjórann, Pétur Jónsson. Stendur það stakt fremst á
brekkubrúninni.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 arnar@fastak.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.