Helgamagrastræti 27
Falleg og vel staðsett 75,8 fm íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi á Helgamagrastræti á Akureyri. Íbúðin er með sérinngangi og þægilega uppsett. Hentar vel sem fjölskyldueign, fyrsta eign eða fjárfesting til útleigu.
Rými eignar:
- Forstofan er með góðu plássi og beinu aðgengi að íbúðinni með inngangi gegnum sameiiginlegt rými
- Stofan er björt og rúmgóð með pláss fyrir bæði setu- og borðstofuhluta.
- Eldhúsið aðskilið rými með eldavél, góðum skápum og borðplássi.
- Tvö svefnherbergi, annað herbergið með fataskáp og litlum krók, hitt hentar vel sem barnaherbergi eða skrifstofa.
- Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum og “walk-in” sturtuaðstöðu.
- Þvottahús er innan íbúðar, sameiginlegt með efri hæð.
- Sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Annað:
- Hluti frárennslislagna nýlega endurnýjað.
- frábær staðsetning, stutt í skóla og leikskóla
- stutt í margs konar atvinnu- og mennigarstarfsemi í bænum
- hentar vel sem íbúð fyrir ungt fólk, þá sem velja sér fallegt sérbýli
Staðsetning:
Helgamagrastræti 27 stendur í rólegum hluta Akureyrar, í göngufæri við miðbæ Akureyrar, grunnskóla, leikskóla og helstu þjónustu. Íbúðin er hentar vel fyrir fyrstu kaup, fjölskyldufólk, eldri borgara eða sem fjárfesting í útleigu.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.