Hólatún 12

2007

600

99.0
72,900,000 kr.
99 m²
4
3
1

Hólatún 12

Opið hús: Hólatún 12, 600 Akureyri, íbúð 01 01.
Eignin verður sýnd fimmtudaginn 16. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30, Arnar tekur vel á móti ykkur, verið hjartanlega velkomin.

Hólatún 12
Mjög sjarmerandi og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í s.k. keðjuhúsi, íbúðir á efri og neðri hæð, skipulag húss er þannig að stigagangur er við hlið íbúðar og engin íbúð liggur upp að þessari.  , stór steypt verönd til vesturs með góðri útigeymslu og góðum skjólveggjum.  
Forstofa er með gráum flísum á gólfi, tvöfaldur hvítsprautaður fataskápur, gólfhiti. 
Gangur, eldhús, stofa og svefnherbergin þrjú eru með vönduðu eikarparketi á gólfi.
Í hjónaherbergi og báðum barnaherbergjunum eru hvítsprautaðir fataskápar, öll herbergin eru afar rúmgóð.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, þar eru gráar flísar á gólfi og stórum hluta veggja, hvít hreinlætistæki, vegghengt salerni, baðkar og handlaug, hvítsprautuð innrétting, gólfhiti.
Stofa og eldhús mynda eitt opið rými, í eldhúsi er hvítsprautuð innrétting með nýlegri vandaðri ljósri borðplötu, ljósar flísar eru á milli efri og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél og ísskápur sem fylgja með.  Stállitur Siemens háfur, AEG keramikhelluborð og ofn.  Nýlegur vaskur og vandað blöndunartæki.  Úr eldhúsi er gengið út á rúmgóða steypta verönd með skjólveggjum og útigeymslu.     
Þvottahús er með hvítsprautaðri innréttingu, gráum flísum á gólfi, góðir skápar og hillur á veggjum, borðplata með vaska.  Rætt hefur verið um að mála hús að utan sumarið 2026 og er reiknað með að eigendur geri það sjálfir.

  • Örstutt í skóla og leikskóla
  • Matvöruverslanir í göngufæri
  • Einn af fallegri golfvöllum landsins rétt hjá 
  • Stutt í góðar gönguleiðir og útivistarparadísina í Kjarnaskógi með nálægum gönguleiðum
  • Hleðslustöð í sameign á enda bílastæðis 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hafðu samband í dag...

... það er frítt!

Fáðu verðmat...

... það er frítt!