Skarðshlíð 4
Langar þig í flott útsýni?
Þá gæti þetta verið eignin handa þér
Falleg og stílhrein 2. herb. íbúð með frábæru útsýni til suðurs og vesturs.
Þessi bjarta og fallega íbúð er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað og mjög miðsvæðis á Akureyri. Svefnherbergi er rúmgott með ágætum skápum. Eldhús og baðherbergi eru bæði snyrtileg, nýleg innrétting á baði.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi
Stofa: Parket á gólfi, gengið út á svalir til suður, mjög flott útsýni
Eldhús: dúkur á gólfi, innrétting eldri en hefur verið máluð.
Baðherbergi: Málaður dúkur á veggjum, gráar flísar á gólfi, nýlegt salerni, baðkar, handlaug og innrétting.
Svefnherbergi: Rúmgott, dúkur á gólfi, skápar rúmgóðir.
· Góð geymsla í kjallara
· Gróinn garður og verönd sem snýr í suður
· Næg bílastæði
· Ljósleiðari
· Engin íbúð fyrir ofan þig!
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.