Skíðabraut 13-15
Góð og mikið endurnýjuð fjögurra herb. íbúð á jarðhæð á góðum stað á Dalvík.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað undanfarin ár, t.s. hefur verið skipt um nær allar frárennslislagnir, rafmagn og heita- og kaldavatnsvatnslagnir hafa verið endunýjuð, allir gluggar, og búið að einangra húsið að utan, lokið verður við utanhússklæðningu sumarið 2025.
Nánari lýsing:
Forstofa, stofa, og eldhús eru með ljósum dúk á gólfi.
Stofa er ágætlega rúmgóð, með glugga í vestur og suður.
Eldhús: Eldri innrétting sem hefur verið klædd með plastfilmu, hvítar borðplötur, eldavél með keramikhelluborði, ljósar flísar á gólfi og veggjum milli skápa.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað, fibo plötur á veggjum, hiti í gólfi, sturta með glervængjum, hvít hreinlætistæki, vegghengt salerni og handlaug, hvít innrétting.
Helstu endurbætur:
- Nánast allar lagnir frá húsinu hafa verið endurnýjaðar
- Allar heita- og kaldavatnslagnir ásamt ofnum hefur verið skipt um
- Allir gluggar nýlegir
- Skipt um möl í bílaplani
- Húsið einangrað að utan
- Húsinu verður skilað fullklæddu að utan 2025
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.