Skíðabraut 7b

1930

620

82.7
25,400,000 kr.
82.7 m²
2

Skíðabraut 7b

Á friðsælum stað á Dalvík stendur Skíðabraut 7B – sérlega sjarmerandi íbúð sem ber með sér anda handverks, minninga og hönnunar.
Eitt af því fyrsta sem grípur mann við eignina er veröndin – falleg blanda af hellulögn og rekaviði, með heitum potti og einstöku útsýni yfir fuglafriðland. Frábært útisvæði sem hentar í bæði leik og slökun fyrir alla fjölskylduna.
Í eldhúsinu er sérsmíðuð innrétting úr bandsöguðu birki frá Heiðmörk, sem núverandi eigendur hafa sjálfir smíðað. Eldhúsborðið og bekkirnir eru líka handunnin – úr viði sem áður bar þakið á gamla leikhúsinu á Dalvík. Þarna sameinast hlýja og sögulegt gildi.
Stofan tengist í hálfopnu rými með fallegu útsýni. Forstofan er flísalögð og býður upp á góða móttöku eða heimkomu.
Svefnherbergi er rúmgóð, og möguleiki er á að útbúa auka herbergi innaf stofu ef þess er óskað.
Baðherbergið býr yfir persónuleika – epoxy á gólfum, sturta með rekaviðarskilrúmi, og bein aðkoma út á veröndina þar sem heiti potturinn bíður. Við hlið baðsins er gestasnyrting, einnig flísalögð.
Ný heimtaug fyriri rafmagn og ný rafmagnstafla, eftir að endurnýja og drega í nújar raflagnir að mestu.  Möguleiki er á uppsetningu ljósleiðara. Heimilistæki á borð við ísskáp og uppþvottavél fylgja með – og hluti húsgagna eftir samkomulagi.
Hvort sem þú ert að leita að varanlegri búsetu, frístundahúsi eða sumareign, þá býður þessi eign upp á fjölbreytta möguleika í einstöku umhverfi. Göngufæri við sundlaug, skíðasvæði og náttúruperlur tryggja jafnvægi milli virkni og kyrrðar.
Þak hefur verið yfirfarið og endunýjað þannig að það er tvöfalt og lektað með veðurhlíf.  

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hafðu samband í dag...

... það er frítt!

Fáðu verðmat...

... það er frítt!