Víðihlíð 5 íbúð 103
Um er að ræða 93,4 m2 fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, stofu, baðherbergi, gangur, geymslu og 12,7 fm verönd ásamt hlutdeild í sameign.
Skilalýsing
Víðihlíð 5 604 Hörgársveit - Nýbygging til afhendingar janúar til feb 2023. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt með báru frá Áltak og Lerki á svalagangi sjá myndir. Gluggar og hurðir eru frá Rational ál/tré. Bílastæði og gangstétt er steypt eða malbikað. Lóð er þökulögð.
Gólfefni: plastparket á alrými, herbergi og geymslu. Flísar eru á forstofu, baðherbergi/þvottahúsi.
Forstofa er með fataskáp með fataslá og hillum.
Baðherbergi: Baðinnrétting er frá HTH, speglar og ljós fylgja. Vegghengt klósett, sturtuhorn með gleri og vönduð blöndunartæki.
Eldhús: Eldhúsinnrétting er úr dökkum við og hvítt matt frá HTH með spansuðuborði, blástursofni með kjöthitamæli, viftu, og innbyggða uppþvottavél allt frá AEG. Vaskur og blöndunartæki. Led lýsing verður í innréttingu.
Herbergi: í herbergjum eru fataskápar með fataslá, hillum og skúffum frá HTH.
Innihurðir eru hvítar á lit.
Gólfhiti er í öllum rýmum.
Raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir, rofar á sinn stað, og ljós í öllum rýmum.
Ídráttarleið er fyrir bílhleðslu.
Allar frekari upplýsingar veita
Arnar 773 5100 [email protected]
Friðrik 773 5115 [email protected]
Svala 663 5260 [email protected]