Hótel Dalvík er staðsett miðsvæðis í sjávarþorpinu Dalvík. Þetta er þægilegt hótel á Norðurlandi með útsýni yfir bæinn og fjöllin í kring.
Hótelið er í 3ja mínútna fjarlægð frá sjávarsíðunni. Það eru aðeins 600 m í sundlaug og aðeins í 35 mínútna akstur til Akureyrar.
Golfvöllurinn Arnarholtsvöllur er aðeins í 7 km fjarlægð frá Hótelinu staðsettur í Svarfaðardal sem er öndvegi íslenskra dala.
Hótelið býður upp á bæði 24 herbergi með einkabaðherbergi og svo 4 með sameiginlegu baðherbergi. Öll herbergi eru með aðgang að þráðlausu neti (Wi-Fi).
Í sameiginlegu rými er þvottaherbergi, garður og sólpallur með borðum. Í anddyrinu er bar, setustofa og skrifstofa.
Hægt er að fara í hvalaskoðun eða sjóstangveiði frá Dalvíkurhöfn sem er aðeins í 500 m fjarlægð frá hótelinu. Ferjan til Grímseyjar fer frá Dalvík þrisvar sinnum í viku. Vinsælt er að fara á hestbak, á snjósleða og fjallaskíði í nágrenni.
Fyrsta hæð eru 12 herbergi með sér baðherbergi
Önnur hæð eru 12 herbergi með sér baðherbergi og tveimur rúmum og 1 herbergi með 1 rúmi en ekki bað.
Kjallari er 1 herbergi með tveimur rúmum og baðherbergi og tvær sameiginlegar snyrtingar .
Í kjallara er rími sem er leigt út stór salur og fjögur herbergi og ein snyrting.
Í kjallara eru líka stafsmanna aðstaða fjögur herbergi,snyrting og eldunar aðstaða,þar eru líka tvær geymslur.
Þvottahús fyrir hótelið er í kjallara stór þvottavél og önnur tæki.
Herbergi
28 tveggja manna með baðherbergi.
2 tveggja manna og tvö 6 manna með sameiginlegu baðherbergi
Einn Bústaður með baðherbergi þar eru tvö herbergi.
Ein lítil svíta með baðherbergi
Samtals eru 33 herbergi til útleigu og verður þeim fjölgað um 6 í kjallara eftir breytingar, sem ætti að vera komið fyrir sumarið 2024.
Í kjallara eru 4 starfsmanna herbergi sameiginlegu bað og eldunaraðstaða.
Stóri matsalurinn er tilvalinn fyrir ráðstefnur og aðra viðburði.
Afþreying
Ferðamenn geta valið úr víðu úrvali afþreyingar, eins og hvalaskoðun, gönguferðir, fuglaskoðun eða dagsferðir til Grímseyjar.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.