Syðri-Kambhóll 0
Einbýlishús sem er 122,8 m2 í Hörgársveit nálægt Akureyri með stórfenglegu útsýni til allra átta. Á lóðinni er 9 m2 geymsluskúr og einangraður og upphitaður 20 feta gámur sem fylgir með.
Skiptist í:
- Forstofu
- Sjónvarpshol
- Baðherbergi
- Fjögur herbergi
- Eldhús
- Stofu
- Þvottahús
Rými:
- Í eldhúsi er viðarinnrétting með ljósum borðplötum, mjög gott skápapláss í innréttingu.
- Úr eldhúsi er innangengt í borðstofu og stofu sem er mjög bjart og rúmgott rými.
- Herbergin eru fjögur og eru öll rúmgóð, á gólfum eru pússaðar og lakkaðar gólffjalir.
- Baðherbergi er nýlega endurnýjað, lagnir, tæki og innrétting, þar eru flísar á gólfi og veggjum, sturta með glervegg, góðar innréttingar, upphengt salerni, gluggi er á baðherbergi.
- Forstofan er rúmgóð með fatahengi og hillum.
- Þvottahúsið er í áfastri viðbyggingu, vitað um leka í þaki í samskeytum húsþaks og þvottahúsþaks, úr þvottahúsi er gengt út á hellulagða verönd með heitum potti.
Annað
- Góð staðsetning
- tæplega 2.000m2 lóð
- Einstaklega fallegt útsýni.
- Húsið er klætt með sinkklæðningu.
- Gluggar eru eldri nema í eldhúsi.
- Þak þarf að yfirfara.
- Gámurinn er með hita og rafmagni.
Húsið þarfnast nokkurs viðhalds, fyrir liggur dómsúrskurður, matsskýrsla o.fl. sem bendir á helstu hluti sem fara þarf í og er hugsanlegum kaupendum bent á að skoða eignina vel.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.