Fasteignasala Akureyrar,
Íbúðin er þriggja herbergja 71,5 m2 og samanstendur af:Forstofu,baðherbergi,þvottahús, eldhús,stofa,gangur,hjónaherbergi,barnaherbergi og geymslu.íbúðinni tilheyrir verönd 11,2 m2 ásamt sérafnotahluta á lóð sem nær 3, m út frá vesturhlið íbúðar.
Skilalýsing fjölbýlishúss við Kristjánshaga 6
Frágangur utanhúss:
Bílastæði og gangstétt er steypt, eða malbikað. Lóðin er þökulögð með túnþökum.
Gólfefni:
Stigahús er með flísum á jarðhæð en teppi á stigagöngum. Hjóla- og vagnageymsla er flísalögð. Plastparket á alrými, herbergi og geymslu. Flísar eru á forstofu, baðherbergi/þvottahúsi og geymslu í sameign.
Forstofa:
Í forstofu er tvöfaldur fataskápur með fataslá og hillum.
Baðherbergi:
Baðinnrétting úr plastlagðri struktur-eik er á baðherbergi.
Speglar og ljós fylgja. Baðherbergi er flísalagt í hólf og golf. Vegghengt klósett, sturtuhorn úr gleri og blöndunartæki af vandaðri gerð.
Eldhús:
Eldhúsinnrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Bekkplötur eru úr formbeygðu harðplasti. Skúffubrautir, hengsli og höldur eru af viðurkenndri og vandaðri gerð. Í eldhúsinnréttingu er svart keramik-helluborð, stál -bakaraofn, innbyggð vifta, ísskápur og vaskur.
Herbergi:
Í herbergi og geymslu er fataskápur með fataslá, hillum og 4 skúffubökkum. Í svefnherbergjum eru fataskápar.
Þvottahús:
Í þvottahúsi er þvottatækjainnrétting úr plastlagðri struktur-eik.
Sólbekkir eru formbeygðir úr hvítu harðplasti.
Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik.
Upphitun:
Íbúðirnar eru með gólfhita.
Raflögn:
Öll raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir og rofar komnir á sinn
stað. Síma- og sjónvarpslagnir í stofurými og herbergjum.
Kappalýsing er á baðherbergi og eldhúsi, einnig fylgja loftljós í
þvottahúsi og baðherbergi.
Geymsla fylgir öllum íbúðum. Í 2ja herbergja íbúðum er hún inní
íbúðinni, annars eru geymslur í kjallara.
Íbúðir tilbúnar til afhendingar : Apríl – Maí 2021
Verðlisti:
Allar frekari upplýsingar veita
Arnar 773 5100 [email protected]
Friðrik 773 5115 [email protected]
Svala 663 5260 [email protected]