Laxárlundur 9
Sjarmerandi sumarhús á einni hæð í Aðaldalnum, samt. 32,0 m2, tvö svefnherbergi, baðherbergi og eldhús/stofa, góður geymsluskúr er viðfastur húsinu og afskaplega skjólríkt á suðurpalli hússins sem er byggt árið 1982, er vel umgengið og hefur verið í eigu sama aðila alla tíð. Upphitun er með gasofnum og voldugri kamínu í stofu.
Á gólfum í forstofu, gangi, stofu eldhúsi eru ljós viðarborð.
Í herbergjum er dúkur á gólfi.
Baðherbergi er með handlaug, salerni og sturtu.
Í stofu er kamína, eldhús er með innréttingu með furuhurðum og rauðum borðplötum.
Við húsið er góð verönd sunnan og vestan við húsið. Afar einfalt er að stækka húsið, rafmagnsleiðsla er rétt við lóðamörk og kalt vatn einnig, nú er einungis kalt vatn til staðar á sumrin en mjög auðvelt að ná í vatn að vetrarlagi í vatnskrana í nágrenninu.
Húsið stendur á 2.241 m2 leigulóð, lóðaleigusamningur var endurnýjaður 2007, gert er ráð fyrir að gerður verði nýr samningur við eigendaskipti með sambærilegum ákvæðum og í þeim fyrri.
Allar frekari upplýsingar veita
Arnar 773 5100 [email protected]
Friðrik 773 5115 [email protected]
Svala 663 5260 [email protected]