Fornagil 11. Mjög fallegt sex herbergja parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Frábært útsýni úr stofu til austurs og norðurs.
219,4 m2 íbúð sem skiptist í tvær hæðir, á jarðhæð er forstofa, bílskúr, geymsla, tvö svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi með sturtu, á efri hæð eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu, skrifstofa, hjónaberbergi, stofa og eldhús sem er eitt rými. Úr eldhúsi og út af baðherbergi er genið út á stóran steyptan sólpall með góðum skjólveggjum og heitum potti.
Nánari lýsing á jarðhæð:Forstofa með fatahengi og góðum fataskáp.
Tvö svefnherbergi með fataskápum.
Baðherbergi með eikar innréttingu, stór sturta með glervegg.
Þvottahús með eikar innréttingu með vaska, þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr með rafdrifinni hurð, hvít stór innrétting, inn af bílskúr er geymsla með góðum hillum, á gólfi eru gráar flísar.
Efri hæð:Tvö herbergi með fataskápum.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Skrifstofa með eikar innréttingu.
Baðherbergi með baðkari og sturtu, eikar innrétting.
Eldhús með eyju, tvöfaldur ískápur, ofn og gufuofn, keramik helluboð í eyju og mikið skúffupláss,innbyggð uppþvottavél.
Stofan, eldhús, borðstofa og hol eru eitt rými, úr stofu og borðstofu er frábært útsýni til austurs og norðurs.
Nánar:- Á allri íbúðinni eru flísar af sömu gerð nema í bílskúr þar eru gráar flísar.
- Allar innréttingar og innihurðir í íbúðinni eru sérsmíðaðar úr spónlagðri Eik.
- Hátt til lofts á efri hæð hússins.
- Hiti er í bílastæði að hluta, bílastæði eru steypt fyrir 3 bíla
- Sólpallurinn er steyptur með hita að hluta og skjólveggir úr harðvið.
- Heitur pottur er á pallinum klæddur með harðvið.
- Hægt er að ganga út á sólpall úr baðherbergi og eldhúsi.
- Varmaskiptir er á neyslu vatni.
- Gólf hiti er í öllum rýmum.
- Frábær eign með góðu útsýni.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]