Díll aldarinnar, þú borgar bara 5% af kaupverði nú og flytur inn!!!
Nú er rétta tækifærið til að eignast nýja 80,0m2 raðhúsaíbúð með lítilli útborgun
Hlutdeildarlán-nýuppfærð viðmið
Þú þarft bara að eiga 5% útborgun!
Kaupverð kr. 49.900.000.-
Útborgun 5% kr. 2.495. 000.-
Bankalán 75% kr. 37.425.000.-
Hlutdeildarlán 20% kr. 9.980.000.- Mjög falleg og skemmtilega hönnuð íbúð við Öldugötu 12 Árskógssandi
Íbúðin afhendist fullbúin í janúar 2023 og uppfyllir skilyrði vegna hlutdeildarlána.
3ja herbergja - 80,0m2 verð 53,5 milljónir kr.
Auk þess er sameign (vagna og hjólageymsla) 16,0 m2.
• Vönduð gólfefni
• Rúmgóð herbergi með góðum skápum
• Öll stærri heimilistæki í eldhúsi fylgja
• Upptekin loft í alrými með innfeldri lýsingu
• Vagna og hjólageymsla
• Hleðsla fyrir rafmagnshjól, lagt fyrir bílhleðslum
• Varmaskiptir fyrir neysluvatn, vönduð hreinlætistæki
• Viðhaldsfrí álklæðning utanhúss, álklæddir gluggar
• Upphituð plön og stéttar
Allar íbúðirnar munu uppfylla skilyrði vegna hlutdeildarlána. Áhugasömum kaupendum er bent á að kynna sér reglur um hlutdeilarlán. https://hlutdeildarlan.is/
Skilalýsing
Raðhús við Öldugötu 2A - Árskógssandi
Húsið verður byggt samkvæmt teikningum gerðum af Arkibygg og hönnuð af Ástríði Birnu Árnadóttur arkitekt og Stefaníu Helgu Pálmadóttur byggingafræðingi.
Byggingaraðili er EGO hús ehf á Akureyri.
Íbúðirnar seljast fullfrágengnar og afhendast á byggingarstigi 7 (ÍST 51:2001) í desmber 2022.
Húsið er þriggja íbúða raðhús á einni hæð ásamt sameign. Í sameign eru sérgeymsla fyrir hverja íbúð, ásamt vagna og hjólageymslu.
Húsið er timbureiningahús, einangrað með 145 mm steinull í útveggjum. Undirstöður eru steyptar í plast einangrunarkubba. Undir gólfplötu er einangrað með 4” plasteinangrun. Gólfplata er steypt, pússuð með flotbretti og rétt af með flotmúr.
Þak er einhalla til norðurs, burðarvirki úr timbri, einangrað með 250mm steinull (reglugerð 220mm). Þak er með 2 lögum af asfalt dúk.
Fráveitu- og drenlagnir lagðar samkvæmt teikningu og tengdar við fráveitukerfi.
Útveggir eru klæddir að utan með litaðri álklæðningu eða timburklæðningu að hluta samkvæmt vali hönnuða. Hurðir og gluggar eru úr timbri og gluggar klæddir lituðu áli að utan. Tvöfalt gler.
Innveggir eru klæddir einu lagi af viðarplötum (festa fyrir skrúfur) og gips þar yfir. Allir veggir og loft verða sandspörsluð þar sem við á og fullmáluð í ljósum lit samkvæmt vali hönnuðar.
Gólf forstofu og baðherbergis verða flísalögð. Önnur gólf íbúðar verð með vönduðu 12 mm harðparketi.
Innihurðir verða hvítar yfirfelldar með svörtum stálhandföngum.
Innréttingar í eldhúsi verða sprautulakkaðar hvítar með svörtum stálhöldum. Spanhelluborð með viftu þar yfir. Bakaraofn með blæstri. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur og frystir). Ábyrgð raftækja er 5 ár.
Á milli bekkjar og efri skápa í eldhúsi verða flísar eða fiber plötur með steypuáferð. Bekkjarplötur verða plasthúðaðar í koksgráum yrjóttum lit. Fataskápar verð hvítir, með svörtum stálhandföngum. Allar skúffur og skápahurðir verða með ljúflokum af viðurkenndri gerð.
Baðherbergi verður með sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Stórt (aflangt) niðurfall í gólfi og glerhlið niður í gólf. Í kringum sturtu koma flísar eða vatnsheldar fiber/plast plötur með steypuáferð. Innrétting og skápar verða hvít hálfmatt.
Hreinlætis-og blöndunartæki í húsinu verða af viðurkenndri gerð. Varmaskiptir fyrir neysluvatn verður uppsettur og tengdur.
Öll ljós íbúðar verða fullfrágengin ásamt lýsingu undir efri skápum í eldhússinnréttingu. Upptekin loft í alrými með innfeldum ljósum, önnur loft niðurtekin.
Útiljós samkvæmt teikningu verða uppsett og frágengin.
Gólfhitakerfi er í öllum gólfum, lagt í hvert rými fyrir sig og stýring fyrir hvert rými.
Neysluvatnslagnir (rör í rör) verða lagðar í gólf að tengistað með tilheyrandi búnaði.
Röralagnir ásamt tilheyrandi dósum fyrir rafmagn og síma/internet lagt í veggi og loft samkvæmt teikningu. Raf og síma-/netlagnir verða fullfrágengnar. Rafmagnstafla verður fullfrágengin. Rör verður lagt frá aðaltöflu að bílastæði fyrir rafhleðslu á bifreiðum.
Lóðin verður jöfnuð og lögð grasi. Stéttar og verandir verða steyptar. Snjóbræðslukerfi verður í stéttum, verönd. Snjóbræðslukerfi verður lokað kerfi, áfyllt frostlegi og tilbúið með varmaskipti.
Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]