Fasteignasala Akureyrar sími 460 5151
[email protected]Undirhlíð 3, 3ja herbergja íbúð á 4.hæð í fjölbýli fyrir 50 ára og eldri - stærð 117,6m² Eignin er laus til afhendingar strax. Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sér geymslu í kjallara. Einnig fylgir eigninni sér stæði í bílageymslu. Forstofa: Eikar skápur er í forstofu.
Eldhús: Vönduð eikar innrétting með flísum á milli skápa, eyja með ljósir borðplötu. Uppþvottavél og ísskápur fylgja með.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi. Í stofu eru stórir gluggar með útsýni til norðurs og austurs. Rennihurð er úr stofu út á steyptar svalir sem eru með svalalokunarkerfi. Svalagólf er flísalagt með rafmagns gólfhita.
Svefnherbergin eru tvö, Stærra herbergið er með góðum fataskáp og þar er stór rennihurð, í minna herberginu eru einnig bókarhillur. Baðherbergi er með flísum á veggjum, vandaðri eikar innréttingu, upphengt salerni og sturtu með glervegg.
Í þvottahúsi er eikar innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og neðri skápar. Sér geymsla er í kjallara, 8,5m² að stærð.
Íbúðin er öll nýmáluð að innan.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]