Víðihlíð 7 íbúð 101, 604 Hörgársveit.
Nýbygging til afhendingar mars 2024.
Um er að ræða 107,6 m2 fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, stofu, baðherbergi, þvottahús/snyrtingu, gang, geymslu og 14,1 m2 verönd ásamt hlutdeild í sameign.
Skilalýsing:
Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt með báru frá Áltak og Lerki á svalagangi sjá myndir. Gluggar og hurðir eru frá Rational ál/tré.
Bílastæði og gangstétt er steypt eða malbikað. Lóðin er þökulögð.
Gólfefni: Harðparket/plast 12 mm þykkt, á alrými, herbergi og geymslu. Flísar eru á forstofu, baðherbergi/þvottahúsi.
Innréttingar og fataskápar: Eru frá HTH og eru dökkbrúnar og hvítar að lit. ( litur Mood + plain White)
Innihurðir: Eru hvítar með svörtum handföngum.
Forstofa: Þar er fataskápur með fataslá og hillum.
Baðherbergi: Baðinnrétting er frá HTH, speglar og ljós fylgja. Vegghengt klósett, sturtuhorn með gleri og vönduð blöndunartæki.
Eldhús: Eldhúsinnrétting er úr dökkum við og hvítt matt frá HTH með spansuðuhelluborði, svartur blástursofn með kjöthitamæli, viftu, og innbyggða uppþvottavél tæki eru öll frá AEG. Vaskur er svartur og niðurfelldur í borðplötu, svört blöndunartæki. Led lýsing verður í innréttingu.
Herbergi: í herbergjum eru fataskápar með fataslá, hillum og skúffum frá HTH.
Raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir, rofar á sinn stað, og ljós í öllum rýmum. Sett verður upp Playd ljósastýringakerfi.
Ídráttarleið er fyrir bílhleðslu.
Annað:- Playd ljósastýringakerfi.
- Niðurfelldur svartur vaskur í eldhúsi, einnig svört blöndunartæki.
- Öll tæki í eldhúsi eru innbyggð og þar fylgja uppþvottavél og ísskápur.
- Innihurðir eru hvítar.
- Gólfhiti er í öllum rýmum.
- Allt neysluvatn fer í gegnum varmaskipti.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]