Vilt þú búa á rólegum stað í Þorpinu?
Mjög gott 4-5 herbergja einbýlishús á rólegum stað í Þorpinu, stakstæður bílskúr og mjög stórt bílaplan við húsið sem rúmar allmarga bíla og hjólhýsi.
Húsið skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi (eins og er en auðvelt að bæta við herbergi), baðherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, búr og þvottahús auk rýmis inn af þvottahúsi sem ætlað er að vera snyrting, stakstæður bílskúr með geymsluloft að hluta.
Forstofa: Ljósbrúnar flísar á gólfi, fatahengi.
Hol/borðstofa: Eru nokkuð rúmgott rými, eikarparket á gólfi, úr borðstofu er gengið út á verönd með flísum og góðum skjólveggjum.
Stofa: Eikarparket á gólfi.
Eldhús: Hvítsprautuð innrétting með ljósum borðplötum, stállituð tæki, vifta og ofn, keramikhelluborð.
Búr inn af eldhúsi: Brúnar flísar á gólfi og hillur.
Svefnherbergi eru þrjú, voru fjögur og auðvelt að breyta aftur, á gólfi í herbergjum er ljós linoleumdúkur, góðir hvítsprautaðir skápar í öllum herbergjum.
Baðherbergi: Sprautulökkuð innrétting, ljós borðplata, sturtuklefi, hvít hreinlætistæki, baðkar, salerni og handlaug.
Þvottahús: Er með sérinngangi, ljósbrúnar flísar á gólfi, nýleg hvít spónlögð innrétting, tæki í þægilegri vinnuhæð.
Inn af þvottahúsi er rými sem er með vatns- og frárennslislögnum í gólfi og ætlað sem aukasnyrting.
Bílskúr er með góðu millilofti, við hliðina á bílskúrnum er áfastur skúr sem nýttur hefur verið undir snjóblásara og dekk o.s.frv.
- Stakstæður bílskúr
- Góður geymsluskúr
- Mjög stórt bilastæði framan við bílskúr og annað framan við húsið
- Gott einbýlishús á einni hæð
- Rólegt umhverfi
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]