Einkasala!!!Fasteignasala Akureyra s. 773-5100
Mjög smekkleg fjögurra herb. íbúð á efri hæð í tveggja hæða húsi, enginn fyrir ofan!
Íbúðin er staðsett í vesturenda hússins, gluggar á þrjá vegu, allar innréttingar gráar/brúnar spónlagðar í sama stíl.
Forstofa: Ljósgráar flísar 60*60cm., tvöfaldur fataskápur.
Gangur, stofa og svefnherbergin þrjú eru öll með brúnu harðparketi.
Hjónaherbergi er með skápum meðfram heilum vegg, gluggar á tvo vegu.
Barnaherbergin eru sitt hvoru megin á gangi, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur í báðum herbergjum.
Baðherbergi er með ljósgráum 60*60cm. flísum á gólfi og tveimur veggjum (eins og á forstofu). Vegghengt salerni, góð sturta með dökkum glervegg,
svartur vaskur með svörtum handlaugartækjum, brún spónlögð innrétting, gott skápapláss, rými fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Eldhús og stofa mynda eina heild, rúmgott svæði með u.þ.b. 10m2 svölum út úr stofu til suðurs.
Innrétting er brún/grá spónlögð, mjög gott skápapláss, grá borðplata, svartur vaskur og svört blöndunartæki, svartur háfur sem blæs út.
Á jarðhæð eru geymslur, ein sérgeymsla fyrir íbúðina og sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Búið að greiða fyrir og setja upp tvær rafhleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla við húsið.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]