Flott tveggja herbergja íbúð með stæði í bílgeymslu
Kjarnagata 51 - íbúð 0205
2ja herbergja íbúð á 2. hæð, birt flatarmál íbúðar: 62,0 m2 Þar af sérgeymsla í kjallara: 3,5 m2, stæði í bílageymslu fylgir.
Lýsing: Á gólfi í forstofu, herbergi, stofu og borðstofu er ljóst parket (hvÍttuð eik) .
Svefnherbergi: Parket á gólfi, góður fataskápur með hvítsprautuðum hurðum.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi, úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til austurs.
Eldhús: Mjög stór innrétting á tveimur veggjum með hvítsprautuðum hurðum, ljósum bekkkjum, keramikhelluborð, stállitur ofn og vifta.
Baðherbergi: Gráar flísar á gólfi, hvít sprautuð innrétting með ljósum borðplötum, sturtuklefi með glerhurðum, hvít hreinlætistæki, handlaug og salerni.
- Yfirbyggt leikskýli fyrir leiktæki og sparkvöll er á sameiginlegri baklóð húsanna.
- Hönnun handriðs og svala er með þeim hætti að auðvelt er að koma fyrir svalalokun í framtíðinni.
- Lóð: Stéttar við aðalinngang eru hellulagðar og malbikaðar með hitalögnum að hluta. Lóð er þökulögð og bílaplön malbikuð.
- Sérstakur vélrænn loftskiptibúnaður með tilheyrandi loftræsilögnum tilheyrir hverri íbúð þar sem ferskt loft er hitað upp með útkastslofti.
- Loft: Loft alrýma og svefnherbergja íbúða eru klædd hljóðdempuðum loftaplötum.
- bílastæði í bílgeymslu
- stutt í verslun, leikskóla og skóla
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]